Illustration of a couch with text "Pétur Örn Svansson Sálfræðingur" on a dark green background.

Pétur Örn Svansson

Pétur hefur starfað sem sálfræðingur frá árinu 2013 og sinnir sálfræðimeðferð, handleiðslu og ráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga, börn og ungmenni. Hann vinnur mikið með kvíða, vanlíðan, sjálfstyrkingu, tilfinningastjórn, streituþolsfærni, félagsfærni og foreldraráðgjöf.

Hann sinnir einnig meðferðarvinnu einstaklinga og hefur annast handleiðslu og fræðslu starfsmanna sem vinna með ungmennum ásamt því að veita foreldraráðgjöf.

Pétur starfar einnig sem sálfræðingur í Klettabæ þar sem hann vinnur með börnum og ungmennum með margþættan vanda, foreldrum þeirra og starfsmönnum. Þessar þjónustuþarfir geta falið í sér taugaþroskaraskanir eins og einhverfu, tengslavanda, hegðunarvanda, félagslega einangrun, áhættuhegðun sem og tilfinningalegar og geðrænar áskoranir. Í Klettabæ hefur Pétur sérhæft sig í fjöláfalla- og tengslamiðuðum stuðningi

Áhersla:

Fullorðnir, börn, ungmenni, hegðunarvandi, félagsleg einangrun, sjálfstyrking, vanlíðan, sjálfstjórn, fjöláfalla- og tengslamiðaður stuðningur, foreldraráðgjöf.

Pétur lauk B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og Cand.psych. prófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn með áherslu á klíníska sálfræði árið 2012.

Pétur tekur viðtöl í Sálfræðihúsinu Hafnarfirði alla fimmtudaga.

Black and white portrait of a smiling person with arms crossed, wearing a button-up shirt.

Sálfræðihúsið

Bæjarhraun 8, Hafnarfjörður